Picture of Kvika banki logo

KVIKA — Kvika banki News Story

0.000.00%
is flag iconLast trade - 00:00
FinancialsBalancedSmall CapValue Trap

Kvika banki hf.: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2023 undir áætlun stjórnenda samkvæmt drögum að uppgjöri

For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20240125:nGNE2rYmQS&default-theme=true


Drög að samstæðuuppgjöri Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fjórða
ársfjórðung 2023 liggja nú fyrir en samkvæmt drögunum er hagnaður
samstæðunnar fyrir skatta áætlaður um 1.480 m.kr. á fjórða
ársfjórðungi, sem er ekki í samræmi við áætlun stjórnenda.

Rekstrarniðurstaðan varð fyrir neikvæðum áhrifum vegna einskiptisliða
að fjárhæð 230 m.kr. og  530 m.kr. sértækrar niðurfærslu vegna
stakrar innlendrar útlánaáhættu. Að öðru leyti var rekstur
samstæðunnar í takti við áætlun á tímabilinu.

Ársuppgjör vegna 2023 er óendurskoðað og enn í vinnslu og getur tekið
breytingum fram að birtingu. Kvika mun birta uppgjör ársins 2023 eftir
lokun markaða þann 15. febrúar 2024.





Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á
innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014
um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um
aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.



Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl
Kviku á netfanginu ir@kvika.is

Recent news on Kvika banki

See all news