For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20230511:nGNEbCQJ3Y&default-theme=true
Á stjórnarfundi þann 11. maí 2023 samþykktu stjórn og forstjóri
árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („samstæða Kviku“) fyrir
tímabilið 1. janúar til 31. mars 2023.
Helstu atriði úr árshlutareikningi fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins
2023
* Hagnaður fyrir skatta nam 1.412 milljónum króna
* Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 13,1%
* Hagnaður á hlut nam 0,24 kr. á tímabilinu
* Heildareignir námu 313 milljörðum króna
* Eigið fé samstæðunnar var 80 milljarðar króna
* Arðgreiðsla að upphæð 1,9 milljörðum króna var samþykkt á
aðalfundi í mars
* Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,34 og eiginfjárhlutfall
samstæðunnar án tryggingastarfsemi (CAR) var 23,6%
* Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 327%
Heildareignir í stýringu námu 466 milljörðum króna
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn kl. 16:15
fimmtudaginn 11. maí í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á
íslensku á eftirfarandi vefslóð:
https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-3m-2023/
Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta
vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.
Hagnaður í samræmi við áætlanir
Hagnaður Kviku fyrir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam
1.412 milljónum króna og var í samræmi við áætlanir þrátt fyrir að
fjárfestingartekjur voru verulega undir áætlun. Arðsemi efnislegs eigin
fjár (e. return on tangible equity) fyrir skatta var 13,1% á tímabilinu.
Hreinar vaxtatekjur samstæðu Kviku námu 2.255 milljónum króna og jukust
um 44% miðað við sama tímabil árið áður og má aukningu vaxtatekna
helst skýra með útlánavexti og hækkandi vaxtastigi sem eykur vaxtatekjur
af skuldabréfaeignum. Hreinar virðisbreytingar voru jákvæðar sem nemur 41
milljón króna samanborið við virðisrýrnun upp á 38 milljónir króna á
fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Hreinar fjárfestingartekjur námu 218
milljónum króna samanborið við 808 milljónir á fyrstu þremur mánuðum
2022. Hreinar þóknanatekjur námu 1.588 milljónum króna sem er 3% lækkun
frá fyrsta fjórðungi 2022. Rekstrarkostnaður nam 3.841 milljón króna á
fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við 3.165 milljónir á fyrsta
fjórðungi 2022. Aukninguna má meðal annars rekja til verðbólguáhrifa og
aukins launakostnaðar, annars vegar vegna kjarasamningsbundinna og
afturvirkra launahækkana og hins vegar vegna fjölgun stöðugilda hjá
félaginu, sem hefur fjárfest í uppbyggingu innviða til þess að styðja
við vöxt félagsins.
Sterkur grunnrekstur af tryggingum
Rekstur TM gekk vel á tímabilinu og nam samsett hlutfall TM 99,7% á fyrsta
ársfjórðungi samanborið við 101,0% á sama tímabili árið á undan.
Sterkur efnahagur og há lausafjárstaða
Heildareignir samstæðu Kviku jukust um 4% eða 13 milljarða króna á
fyrsta fjórðungi 2023 og námu 313 milljörðum króna í lok mars. Útlán
til viðskiptavina jukust um tæpa 3 milljarða króna á tímabilinu og námu
110 milljörðum króna í lok mars. Innstæður í bönkum og Seðlabanka
ásamt ríkistryggðum verðbréfum námu 98 milljörðum króna en heildar
lausafjáreignir voru 120 milljarðar króna og jukust um 3 milljarða króna
á tímabilinu. Heildar lausafjárþekja (LCR) samstæðunnar án
tryggingastarfsemi nam 327% í lok fjórðungsins sem var vel umfram 100%
lágmarkskröfu eftirlitsaðila.
Eigið fé samstæðunnar var 80 milljarðar króna í lok tímabilsins
samanborið við 81 milljarða króna í lok 2022, en eigið fé lækkaði
frá áramótum m.a. vegna ákvörðunar um arðgreiðslu. Gjaldþolshlutfall
fjármálasamsteypunnar var 1,34 í lok fjórðungsins og áhættuvegið
eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) án áhrifa TM nam 23,6%, en
eiginfjárkrafa ásamt eiginfjáraukum eftirlitsaðila er 17,9%. Þessar
tölur innihalda ekki ókannaðan hagnað fjórðungsins.
Afkomuspá óbreytt
Afkomuspá Kviku fyrir næstu fjóra fjórðunga gerir ráð fyrir 9,4
milljarða króna hagnaði fyrir skatta sem samsvarar 21,9% arðsemi á
efnislegt eigið fé samstæðunnar. Nánari forsendur má sjá í
meðfylgjandi fjárfestakynningu.
Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku:
„Rekstur Kviku gekk vel á fjórðungnum þrátt fyrir krefjandi
markaðsaðstæður. Afkoma félagsins er í samræmi við áætlanir og
sérstök áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu innviða félagsins að
undanförnu.
Vátryggingareksturinn skilaði góðri afkomu á almennt tjónaþungu
tímabili, iðgjaldavöxtur var í takt við verðlagsþróun og samsett
hlutfall TM var 99,7% á fyrsta ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur jukust um
44% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs sem skýrist einkum af
töluverðum útlánavexti og auknum vaxtatekjum af skuldabréfaeignum
félagsins. Þóknanatekjur lækkuðu lítillega milli tímabila meðal annars
vegna lægri árangurstengdra þóknana í eignastýringu. Þá hefur
áframhaldandi órói á fjármálamörkuðum enn áhrif á
fjárfestingartekjur.
Grunnstoðir félagsins eru sterkar. Á fyrsta fjórðungi ársins lögðum
við áfram áherslu á uppbyggingu sterkra innviða til þess að styðja
við þann vöxt sem áætlaður er á næstu misserum með nýju og spennandi
vöru- og þjónustuframboði. Unnið er að fjölmörgum verkefnum sem
styðja við stefnu okkar um að auka samkeppni, einfalda fjármál
viðskiptavina og umbreyta þannig fjármálaþjónustu á Íslandi.
Straumur greiðslumiðlun, nýtt dótturfélag Kviku, framkvæmdi á dögunum
fyrstu færslurnar fyrir viðskiptavini sína og þróun á uppfærslu Aur
gengur vel en þar verður boðið upp á framsæknar nýjungar í banka- og
vátryggingaþjónustu. Þá jukust innlán félagsins um 6% frá áramótum
sem rekja má til áframhaldandi velgengni Auðar sem hefur haldið
forystuhlutverki sínu og heldur áfram að bjóða viðskiptavinum góða
vexti á innlánsreikningum.
Samrunaviðræður við Íslandsbanka standa yfir og miðar vel. Eins og við
höfum áður greint frá geta mikil tækifæri falist í samrunanum.
Verkefnið er umfangsmikið og það eru mörg skref í svona ferli, en einsog
tilkynnt var um í síðustu viku munu fjárhagslegir ráðgjafar skila
greiningum sínum á öðrum ársfjórðungi og í kjölfar þess munu
félögin taka ákvarðanir um næstu skref í ferlinu.“
Viðhengi
* Kvika - Condensed Interim Consolidated Financial Statements 31.03.23
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/2fe950b2-ac55-43d4-aaaa-7af91dfeada8)
* Kvika - 3M 2023 Presentation
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/7756fc2e-1858-4b92-8236-287b4492c47d)