Picture of Kvika banki logo

KVIKA — Kvika banki News Story

0.000.00%
is flag iconLast trade - 00:00
FinancialsBalancedSmall CapValue Trap

Kvika banki hf.: Afkoma fyrstu níu mánuði ársins 2023

For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20231102:nGNEmBXxC&default-theme=true


Á stjórnarfundi þann 2. nóvember 2023 samþykktu stjórn og forstjóri
árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir tímabilið
1. janúar til 30.september 2023.
                                                                                                           

Helstu atriði úr árshlutareikningi fyrstu níu mánaða ársins 2023
* Hagnaður fyrir skatta nam 3.742 milljónum króna
* Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 11,5%
* Hagnaður á hlut nam 0,5 kr. á tímabilinu
* Heildareignir námu 328 milljörðum króna
* Eigið fé samstæðunnar var 80 milljarðar króna
* Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,24 og eiginfjárhlutfall
samstæðunnar án tryggingastarfsemi (CAR) var 22,7%
* Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 301%
* Heildareignir í stýringu námu 449 milljörðum króna
* Samsett hlutfall trygginga nam 94,0%
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn kl. 16.15
fimmtudaginn 2. nóvember í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á
íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-9m-2023/

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta
vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.

Áhrifa af erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum gætir enn

Hagnaður Kviku fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 nam 3.742
milljónum króna og arðsemi efnislegs eigin fjár (e. return on tangible
equity) fyrir skatta var 11,5% á tímabilinu. Á þriðja ársfjórðungi nam
hagnaður Kviku fyrir skatta 1.058 milljónum króna, sem er er í samræmi
við spá bankans um hagnað að undanskildum fjárfestingartekjum, sem birt
var samhliða 6 mánaða uppgjöri í ágúst síðastliðnum.

Hreinar vaxtatekjur námu 6.469 milljónum króna og jukust um 12% miðað
við sama tímabil árið áður. Vaxtatekjur útlána jukust töluvert frá
sama tímabili árið áður, einkum vegna heilbrigðs vaxtar lánabókar en
á móti minnkaði vaxtamunur lausafjáreigna vegna mikilla hækkana vaxta á
tímabilinu.

Markaðsaðstæður hafa enn mikil áhrif á hreinar fjárfestingartekjur og
þóknanatekjur. Fjárfestingatekjur námu 170 milljónum króna á
tímabilinu og hreinar þóknanatekjur voru 4.423 milljónir króna.

Rekstrarkostnaður, að viðbættum rekstrarkostnaði trygginga nam 11.271
milljón króna á fyrstu níu mánuðum ársins.

Öflugur tryggingarekstur, sterkt samsett hlutfall í þriðja fjórðungi

Rekstur TM heldur áfram að vera sterkur og nam samsett hlutfall TM 87,5% á
þriðja fjórðungi og 94,0% á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið
við 95,8% á sama tímabili árið á undan. Þá jukust iðgjaldatekjur á
tímabilinu um 12,9% frá fyrra ári en tjónakostnaður hægar eða um 10,2%.

Sterkur efnahagur og lausafjárstaða

Heildareignir eru stöðugar og námu 328 milljörðum króna í lok
september. Útlán til viðskiptavina jukust um tæpa 17 milljarða króna á
tímabilinu og námu 124 milljörðum króna í lok september. Innstæður í
bönkum og Seðlabanka ásamt ríkistryggðum verðbréfum námu 104
milljörðum króna en heildar lausafjáreignir voru 141 milljarðar króna.
Heildar lausafjárþekja (LCR) samstæðunnar án tryggingastarfsemi nam 301%
í lok tímabilsins sem var vel umfram 100% lágmarkskröfu eftirlitsaðila.

Eigið fé samstæðunnar var 80 milljarðar króna í lok tímabilsins.
Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,24 í lok árshelmingsins og
áhættuvegið eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) án áhrifa TM nam
22,7%, en eiginfjárkrafa ásamt eiginfjáraukum eftirlitsaðila er 18,7%.

Endurkaupum lokið

Á tímabilinu 26. júní til 27. september keypti Kvika 58.952.375 eigin
hluti, sem samsvarar 1,233% af útgefnum hlutum í félaginu, fyrir
999.999.999 kr. Kaup á eigin bréfum samkvæmt endurkaupa áætlun, sem
samþykkt var af stjórn Kviku 23. júní 2023, námu að hámarki
1.000.000.000 króna að kaupverði og er þeim lokið.

Kvika mun skoða frekari endurkaup í samræmi við arðgreiðslustefnu
bankans þar sem kveðið er á um að Kvika horfi til þess að greiða að
lágmarki 25% af hagnaði eftir skatta til hluthafa, annað hvort í formi
arðgreiðslu eða með endurkaupum á eigin bréfum.

Horfur óbreyttar

Rekstrarniðurstaða að frátöldum hreinum fjárfestingatekjum fyrir
þriðja ársfjórðung 2023 er í samræmi við spá bankans sem birt var í
ágúst 2023 samhliða birtingu uppgjörs Kviku fyrir fyrri árshelming 2023.

Spá Kviku um afkomu félagsins fyrir skatta, án hreinna fjárfestingatekna,
helst óbreytt og er gert ráð fyrir að afkoman verði um 6,6 milljarðar
króna á 12 mánaða tímabili sem lýkur 30. júní 2024. Áætlað er að
fjárhagsleg markmið verði birt samhliða birtingu uppgjörs Kviku fyrir
fjórða ársfjórðung í febrúar 2024.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Undirliggjandi rekstur bankans hefur verið traustur á þessu ári, en
við höfum lent í mótvindi vegna hækkandi vaxta og krefjandi aðstæðna
á fjármálamörkuðum. Þetta endurspeglast í lægri þóknanatekjum í
eignastýringu og markaðsviðskiptum sem og í hverfandi fjárfestingatekjum.
Það er hins vegar mjög jákvætt að sjá góða afkomu í vátrygginga- og
lánastarfsemi okkar. Vátryggingar skila framúrskarandi samsettu hlutfalli
á þriðja ársfjórðungi og vöxtur lánabókar er góður á öllum
sviðum.

Við sjáum líka jákvæða þróun í flestum rekstrareiningum. Á
Viðskiptabankasviði eru öll vörumerki okkar í einstaklingsþjónustu,
Lykill, Auður, Netgíró og Aur í öflugum vexti. Straumur lauk innleiðingu
nær allra söluaðila sem fluttir voru frá Rapyd og er félagið nú í
fullum rekstri með um 25% hlutdeild á innlendum greiðslumarkaði. Kvika er
með hæstu markaðshlutdeild í skuldabréfaviðskiptum á Nasdaq Iceland á
þessu ári auk þess sem hlutdeild í hlutabréfaviðskiptum hefur aukist
umtalsvert. Þá fer afkoma í Bretlandi batnandi með heilbrigðum vexti
lánabókar og bættum vaxtamun.

Gripið hefur verið til aðgerða til að auka skilvirkni og bæta rekstur í
bankanum. Meðal lykilaðgerða er 900 milljóna króna lækkun árlegs
rekstrarkostnaðar og stefnumótandi ákvörðun um að hefja sölu á
dótturfélaginu TM. Salan mun gera Kviku kleift að skerpa áherslu
stjórnenda á kjarna bankastarfsemi, stækka og auka fjölbreytni í
lánabók bankans, auka arðsemi, auk þess að skila verulegu fjármagni til
hluthafa."

Viðhengi
*     Kvika - Condensed Interim Consolidated Financial Statements 30.09.2023
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/e5043040-58e2-4460-b4c7-67b878551a3a)
  
*     Kvika 9M investor presentation
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/e81fdf2f-fab4-4f04-a881-1ab0d5244712)

Recent news on Kvika banki

See all news