Picture of Kvika banki logo

KVIKA — Kvika banki News Story

0.000.00%
is flag iconLast trade - 00:00
FinancialsBalancedSmall CapValue Trap

Kvika banki hf.: Afkoma fyrstu sex mánuði ársins 2023

For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20230817:nGNE53dgvQ&default-theme=true


Á stjórnarfundi þann 17. ágúst 2023 samþykktu stjórn og forstjóri
árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir tímabilið
1. janúar til 30.júní 2023.
                                                                                                           

Helstu atriði úr árshlutareikningi á fyrri árshelmingi 2023
* Hagnaður fyrir skatta nam 2.684 milljónum króna
* Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,4%
* Hagnaður á hlut nam 0,4 kr. á tímabilinu
* Heildareignir námu 330 milljörðum króna
* Eigið fé samstæðunnar var 81 milljarðar króna
* Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,24 og eiginfjárhlutfall
samstæðunnar án tryggingastarfsemi (CAR) var 23,1%
* Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 390%
* Heildareignir í stýringu námu 457 milljörðum króna
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn kl. 16:15
fimmtudaginn 17. ágúst í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á
íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-6m-2023/

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta
vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.

Afkoma ágæt en áhrifa af erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum
gætir enn

Hagnaður Kviku fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 nam 2.684
milljónum króna og arðsemi efnislegs eigin fjár (e. return on tangible
equity) fyrir skatta var 12,4% á tímabilinu.

Hreinar vaxtatekjur námu 4.347 milljónum króna og jukust um 27% miðað
við sama tímabil árið áður og má aukningu vaxtatekna helst skýra með
útlánavexti og hækkandi vaxtastigi sem eykur vaxtatekjur af
skuldabréfaeignum. Vaxtatekjur útlána jukust um 423 milljónir króna á
fjórðungnum en þrátt fyrir það lækkar hreinn vaxtamunur lítilega á
milli fjórðunga því sterk lausafjárstaða og mikil hækkun vaxta á
tímabilinu hafði tímabundið neikvæð áhrif á vaxtamun annars
ársfjórðungs. Hrein virðisrýrnun nam 29 milljónum króna á tímabilinu
samanborið við 96 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2022.
Hreinar fjárfestingartekjur námu 436 milljónum króna. Hreinar
þóknanatekjur námu 3.085 milljónum króna. Rekstrarkostnaður nam 5.713
milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins.

Sterkur rekstur og iðgjaldaaukning í tryggingum

Tryggingarekstur TM gekk vel á tímabilinu og nam samsett hlutfall TM 97,5%
á fyrri hluta ársins samanborið við 99,9% á sama tímabili árið á
undan. Talsverð hækkun var á iðgjaldatekjum á tímabilinu sem jukust um
10,1% á sama tíma og tjónakostnaður hækkaði mun minna eða um 4,4%.

Sterkur efnahagur og há lausafjárstaða

Heildareignir jukust um 10% eða tæpa 31 milljarða króna á fyrstu sex
mánuðum ársins 2023 og námu 330 milljörðum króna í lok júní. Útlán
til viðskiptavina jukust um tæpa 12 milljarða króna á tímabilinu og
námu 119 milljörðum króna í lok júní. Innstæður í bönkum og
Seðlabanka ásamt ríkistryggðum verðbréfum námu 105 milljörðum króna
en heildar lausafjáreignir voru 128 milljarðar króna og jukust um 11
milljarða króna á tímabilinu. Heildar lausafjárþekja (LCR)
samstæðunnar án tryggingastarfsemi nam 390% í lok árshelmingsins sem var
vel umfram 100% lágmarkskröfu eftirlitsaðila.

Eigið fé samstæðunnar var 81 milljarður króna í lok tímabilsins.
Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,24 í lok árshelmingsins og
áhættuvegið eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) án áhrifa TM nam
23,1%, en eiginfjárkrafa ásamt eiginfjáraukum eftirlitsaðila er 18,7%.

Endurkaup hófust í júní 2023

Á tímabilinu 26. júní til 11. ágúst keypti bankinn 31.900.000 eigin
hluti, sem samsvarar um það bil 0,7% af útgefnu hlutafé, fyrir um 550
milljónir. Kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun, sem samþykkt
var af stjórn Kviku þann 23. júní 2023, munu að hámarki nema 1
milljarði króna.

Afkomuspá hækkar um 200 milljónir

Afkomuspá Kviku er nú sett fram fyrir grunnrekstur samstæðunnar, sem
skilgreind er sem afkoma án fjárfestingatekna, í stað heildarafkomu.

Afkomuspá, án fjárfestingatekna, gerir ráð fyrir 6,6 milljarða króna
hagnaði fyrir skatta fyrir næstu tólf mánuði. Sambærileg spá sem birt
var eftir fyrsta ársfjórðung hljóðaði upp á 6,4 milljarða króna, og
er afkomuspáin því að hækka um 200 m.kr. Síðasta spá, með
fjárfestingatekjum, hljóðaði upp á 9,4 milljarðar. Ef notuð væri sama
framsetning og áður væri ný afkomuspá 9,6 milljarðar.

Afkoma Kviku verður fyrir áhrifum af afkomu fjárfestingareigna í gegnum
hreinar fjárfestingartekjur, en samhliða breyttri framsetningu eru í
fjárfestakynningu veittar auknar upplýsingar um samsetningu eigna félagsins
til þess að auðvelda markaðsaðilum að meta líklegar
fjárfestingartekjur.

Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku:

„Kvika skilar ágætri afkomu á öðrum ársfjórðungi og kjarnastarfsemi
heldur áfram að styrkjast. Rekstur viðskiptabanka, fyrirtækja og markaða
og trygginga gekk vel á tímabilinu en eignastýring og
fjárfestingastarfsemi litaðist talsvert af erfiðum aðstæðum á
verðbréfamörkuðum. Ég tel uppgjörið vera vel ásættanlegt og að
félagið eigi mikið inni.

Á undanförnum árum hefur Kvika markvisst fjárfest í uppbyggingu
félagsins með áherslu á fjártækni, nýsköpun í fjármálaþjónustu og
öflugan mannauð. Stefna okkar er og hefur verið að umbreyta
fjármálaþjónustu á Íslandi með gagnkvæman ávinning að leiðarljósi.
Það er ánægjulegt að á undanförnum vikum hefur mikilvægum áföngum á
þeirri vegferð okkar verið náð.

Félagið tók stórt skref með útvíkkun þjónustu Aurs inn á
einstaklingsmarkað með uppfærslu sem sett var í loftið á dögunum.
Viðtökur viðskiptavina Aurs hafa verið langt umfram væntingar okkar en
frá því að uppfært Aur app var sett í almenna dreifingu í lok júlí
hafa verið gefin út yfir 9.000 ný greiðslukort og viðskiptavinir
byrjaðir að notfæra sér nýja þjónustu. Með tilkomu nýrra lausna í
Aur heldur Kvika áfram að auka samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði.
Á sama tíma hefur Straumur, greiðslumiðlunarfélag bankans, farið vel af
stað en flutningar á söluaðilum frá Rapyd ganga vel og verður
yfirfærslu á öllum söluaðilum lokið á seinni hluta ársins.

Við höfum byggt góðan grunn að undanförnu og það eru því spennandi
tímar framundan í fjártækni og nýsköpun í fjármálaþjónustu
Kviku.“

 

Viðhengi
*     Kvika - Condensed Interim Consolidated Financial Statements 30.06.2023
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/2953c0f4-79b3-4290-b6ca-1cc89dc3016b)
  
*     Kvika 6M 2023 Investor Presentation
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/17bd861c-7fb0-4a09-8de0-f582b3337bc2)

Recent news on Kvika banki

See all news