Picture of Kvika banki logo

KVIKA — Kvika banki News Story

0.000.00%
is flag iconLast trade - 00:00
FinancialsBalancedSmall CapValue Trap

Kvika banki hf.: Ársreikningur Kviku banka 2023 og afkoma á fjórða ársfjórðungi

For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20240215:nGNE8VvFGf&default-theme=true


15. febrúar 2024

Á stjórnarfundi þann 15. febrúar 2024 samþykktu stjórn og forstjóri
ársreikning samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir árið 2023.

Í samstæðureikningi Kviku fyrir árið 2023 er tryggingafélagið TM
tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af
leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir
samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í
rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi.
Samanburðartölur við rekstur ársins 2022 hafa verið uppfærðar til
samræmis.

Helstu atriði ársreiknings og afkomu 2023:
* Hagnaður fyrir skatta, að meðtalinni afkomu TM, nam 5.245 milljónum
króna, samanborið við 5.621 m.kr. árið 2022 og lækkar um 7% frá árinu
áður.
* Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 4.034 milljónum króna,
samanborið við 4.913 m.kr. árið 2022 og lækkar um 18% frá árinu áður.
* Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta var 12,1%, samanborið
við 13,1% árið 2022.
* Hagnaður á hlut nam 0,84 kr. á árinu 2023, samanborið við 1,02 kr.
árið 2022.
Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:
* Hreinar vaxtatekjur námu 8.021 milljónum króna á árinu, samanborið
við 7.085 m.kr. árið 2022 og hækkuðu um 13% frá fyrra ári.
* Vaxtamunur var 3,6% á árinu 2023.
* Hreinar þóknanatekjur námu 5.916 milljónum króna, samanborið við
6.414 m.kr. árið 2022 og lækkuðu um 8% frá fyrra ári.
* Hreinar fjárfestingatekjur námu 442 milljónum króna, samanborið við
278 m.kr. árið 2022 og hækkuðu um 59% frá fyrra ári.
Tekjur af tryggingastarfsemi:
* Hagnaður tryggingafélagsins TM eftir skatta er samandreginn í einni línu
í rekstrareikningi sem eign haldið til sölu og nam 1.730 milljónum króna
á árinu, samanborið við 560 m.kr. árið 2022 og hækkaði því um 209%
frá árinu áður.
* Samsett hlutfall trygginga nam 93,6%, samanborið við 94,2% árið 2022.
Helstu atriði efnahags:
* Innlán frá viðskiptavinum námu 134 milljörðum króna, samanborið við
112 ma.kr. árið 2022 og jukust um 20% milli ára.
* Útlán til viðskiptavina voru 136 milljarðar króna, samanborið við 107
ma.kr. árið 2022 og jukust um 27% milli ára.
* Heildareignir námu 335 milljörðum króna, samanborið við 300 ma.kr.
árið 2022.
* Eigið fé samstæðunnar var 82 milljarðar króna í lok ársins,
samanborið við 81 ma.kr. árið 2022.
* Gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar var 1,25 í lok ársins,
samanborið við 1,36 árið 2022 og eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR)
var 22,6%, samanborið við 23,5% árið 2022.
* Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 247%, samanborið
við 320% árið 2022.
* Heildareignir í stýringu námu 470 milljörðum króna, samanborið við
462 ma.kr. árið 2022.
Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F 2023)
* Hagnaður fyrir skatta, að meðtalinni afkomu TM, nam 1.427 m.kr. á 4F
2023, samanborið við 1.613 m.kr. á 4F 2022 og lækkar um 13% frá árinu
áður.
* Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 1.502 m.kr. á 4F 2023,
samanborið við 1.711 m.kr. á 4F 2022 og lækkar um 12% á milli ára.
* Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta var 13,9%, samanborið
við 15,3% á fjórða fjórðungi árið 2022.
* Hagnaður á hlut nam 0,33 kr. á 4F 2023, samanborið við 0,36 kr. á 4F
2022.
Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:
* Hreinar vaxtatekjur námu 2.331 m.kr. á 4F 2023, samanborið við 1.639
m.kr. á 4F 2022 og hækkuðu því um 39% frá fyrra ári.
* Vaxtamunur var 3,9% á 4F 2023, samanborið við 3,4% á 4F 2022.
* Hreinar þóknanatekjur voru 1.578 m.kr. á 4F 2023, samanborið við 1.541
m.kr. á 4F 2022 og hækkuðu því um 2% frá fyrra ári.
* Hreinar fjárfestingatekjur voru neikvæðar um 11 m.kr. á 4F 2023,
samanborið við 33 m.kr. hagnað á 4F 2022.
Tekjur af tryggingastarfsemi:
* Hagnaður tryggingafélagsins TM eftir skatta er samandreginn í einni línu
í rekstrareikningi sem eign haldið til sölu og nam 914 milljónum króna á
4F 2023, samanborið við 1.005 m.kr. á 4F 2022 og lækkaði því um 9% frá
árinu áður.
* Samsett hlutfall trygginga nam 92,5%, samanborið við 89,4% á fjórða
ársfjórðungi 2022.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Rekstur Kviku á síðasta ári var traustur og afkoman viðunandi í
ljósi krefjandi aðstæðna á fjármálamörkuðum. Hagnaður fyrir skatta,
að tryggingafélaginu TM meðtöldu, nam 5,3 milljörðum króna á árinu
2023 og arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,1% á árinu.

Hreinar vaxtatekjur jukust um 13% á milli ára, en aðstæður framan af ári
voru Kviku óhagstæðar vegna ört hækkandi vaxta þar sem vaxtakostnaður
innlána hækkaði hraðar en vaxtatekjur vegna útlána. Á seinni hluta árs
dró úr þessari þróun eftir að stýrivextir hættu að hækka og ber
afkoma fjórða ársfjórðungs þess merki þar sem hreinar vaxtatekjur
jukust um 39% á fjórðungnum samanborið við sama tímabil árið áður.

Markaðsaðstæður höfðu áhrif á hreinar þóknanatekjur sem drógust
saman milli ára, sér í lagi vegna lægri þóknana í eignastýringu sem og
hjá fyrirtækjum og mörkuðum. En jákvæður viðsnúningur varð á
síðasta ársfjórðungi vegna hækkandi þóknanatekna í eignastýringu og
á viðskiptabankasviði vegna aukinna umsvifa hjá Straumi.

Kvika er í dag með sterka eiginfjárstöðu, er vel fjármögnuð og með
fjölbreytt og vel dreift lánasafn, sem er öfundsverð staða og gefur góð
fyrirheit um rekstur ársins 2024.

Öll vörumerki okkar í einstaklingsþjónustu eru í öflugum vexti þar sem
m.a. hefur verið lögð áhersla á að koma nýjum vörum og þjónustu á
markað. Innlán hjá Auði jukust um nær 50%, metár var í útlánum hjá
Lykli og Netgíró hélt áfram að vaxa. Aur, sem hefur verið í
framsækinni þróun býður nú uppá fjölbreytta bankaþjónustu og hefur
gefið út yfir 27.000 ný greiðslukort. Straumur, sem tók til starfa á
síðasta ári, er í mikilli sókn með um 25% hlutdeild á innlendum
greiðslumiðlunarmarkaði.

Hlutdeild í markaðsviðskiptum hefur farið vaxandi þar sem við erum með
hæstu markaðshlutdeild í skuldabréfamiðlun á Nasdaq Iceland. Eignir í
stýringu fara vaxandi og sjóðastýring Kviku eignastýringar hefur verið
að skila hæstu ávöxtun á markaðnum. Þá er Kvika eini íslenski bankinn
sem býður þjónustu með starfsemi í Bretlandi og hefur afkoman þar
farið batnandi með auknum vaxtamun og vexti lánabókar.

Tryggingastarfsemin hjá TM skilaði framúrskarandi rekstri á síðasta ári
og einnig á fjórða ársfjórðungi. Söluferlið á TM, sem er leitt af
fyrirtækjaráðgjöf Kviku, gengur vel en um áramót var fjórum aðilum
boðið að halda áfram í söluferlinu. Við gerum enn ráð fyrir að sölu
eða skráningu TM verði lokið á öðrum eða þriðja ársfjórðungi
ársins 2024.

Kvika hefur uppfært og birtir nú fjárhagsleg markmið bankans sem eru að
arðsemi efnislegs eiginfjár fyrir skatta verði að jafnaði 20% eða
hærri, að eiginfjárhlutfall bankans verði 2-4% yfir kröfum
eftirlitsaðila og að samanlagðar arðgreiðslur og endurkaup verði að
lágmarki 25% af hagnaði eftir skatta.

Við munum leggja okkur fram um að arðsemismarkmiði Kviku verði náð með
áherslu á að efla starfsemi okkar á sviði viðskipta- og
fjárfestingabankastarfsemi auk eignastýringar í kjölfar sölunnar á TM,
einföldun starfseminnar og áframhaldandi áherslu á hagkvæmni í rekstri.
Þá mun stöðugra vaxtaumhverfi og markaðsaðstæður einnig stuðla að
bættri arðsemi bankans.“

Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn
15. febrúar kl. 16.15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á
íslensku á eftirfarandi vefslóð:
https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-2023/
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum
stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta
vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.

Útgáfa sjálfbærniskýrslu 2023
Sjálfbærniskýrsla Kviku fyrir árið 2023 kemur út samhliða birtingu
ársreiknings og er birt á vef Kviku.

 


Viðhengi
*     Kvika - Consolidated Financial Statements 31.12.2023
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/e8183b65-e730-4ae0-9650-e1a9132f8f2c)
  
*     254900WR3I1Z9NPC7D84-2023-12-31-en
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/b80d060d-10ee-4a65-8ae7-ed92c644ee61)
  
*     Kvika 12M 2023 Investor Presentation
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/33ffaf5b-207f-4b39-ad10-4325ea4c6e50)
  
*     Uppgjör 12M 2023 - Fréttatilkynning_ISL
(https://ml-eu.globenewswire.com/Resource/Download/38db3130-cb75-4cb3-b3c5-f0878a9c4358)

Recent news on Kvika banki

See all news