For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20230820:nGNE8dXWZR&default-theme=true
Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) og forstjóri
bankans, Marinó Örn Tryggvason, hafa í dag gert samkomulag um starfslok
forstjóra bankans. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að
frumkvæði forstjórans. Hann hefur látið af störfum.
Stjórn Kviku hefur ráðið Ármann Þorvaldsson sem forstjóra bankans. Hann
hefur þegar hafið störf. Ármann hefur áður starfað sem forstjóri Kviku
á árunum 2017-2019 og var aðstoðarforstjóri bankans árið 2019 til
ársloka 2022. Hann á að baki áratuga starfsreynslu á fjáramálamarkaði.
Ármann útskrifaðist með MBA gráðu frá Boston University árið 1994 og
er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Marinó Örn Tryggvason fráfarandi forstjóri Kviku:
„Ég hóf störf hjá Kviku fyrir rúmum sex árum og hef verið forstjóri
félagsins síðustu fjögur ár. Á þessum tíma hefur bankinn breyst mikið
og er núna orðið eitt af stærstu og verðmætustu fyrirtækjum landsins.
Ég er stoltur af því hvað okkur, sem störfum hjá félaginu, hefur tekist
að efla rekstur þess og vöxt.
Félagið stendur á ákveðnum tímamótum þar sem fjárfestingar
undanfarinna ára í innri vexti, svo sem útvíkkun á fjártæknistarfsemi,
eru farnar að skila sér. Þá hefur Kvika aukið samkeppni á innlendum
fjármálamarkaði sem skilar miklum ávinningi til samfélagsins. Framundan
eru mikil tækifæri fyrir frekari vöxt og uppbyggingu bankans á þessum
grunni.
Á undanförnum vikum hef ég hugsað um það hvort ég telji rétt að ég
leiði félagið í áframhaldandi uppbyggingu. Niðurstaða mín var að ég
óskaði eftir því að ljúka störfum og tel það skynsamlega
niðurstöðu bæði fyrir mig og félagið.
Mig langar til þess að þakka stjórn og starfsmönnum fyrir gott samstarf
á undanförnum árum. Hjá félaginu starfar stór hópur öflugs
starfsfólks og ég mun sakna samstarfsfélaganna en á sama tíma verður
spennandi að fylgjast með þeim ná áframhaldandi árangri.“
Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku:
„Kvika hefur eflst mjög síðan Marinó tók við sem forstjóri bankans og
hvílir starfsemi bankans á fjölbreyttari stoðum í dag. Á þessum
tímamótum vill stjórn Kviku þakka Marinó fyrir störf hans í þágu
bankans og stjórnin óskar honum velfarnaðar áfram í sínum störfum.
Þá er það ánægjuefni að geta tilkynnt um ráðningu Ármanns
Þorvaldssonar sem forstjóra bankans. Ármann hefur strax störf sem
forstjóri og fáir sem þekkja til starfsemi Kviku jafnvel og hann. Reynsla
og þekking Ármanns á fjármálamarkaði gerir það að verkum að hann
verður öflugur leiðtogi bankans sem getur unnið af krafti úr þeim
fjölmörgu tækifærum sem blasa við Kviku.“
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Það er mér mikið tilhlökkunarefni að taka við forstjórastarfinu
hjá Kviku banka af Marinó Erni eftir farsæla stjórnartíð hans, þar sem
samstæðan hefur styrkst og stækkað umtalsvert. Ég sé fjölmörg
tækifæri til þess að efla Kviku áfram og það verður verkefni næstu
missera að vinna úr þeim til hagsbóta fyrir hluthafa bankans.
Mér er nýtt starf ekki alveg ókunnugt, en Kvika hefur mikið breyst frá
því ég hélt um stjórnartaumana og ég er mjög spenntur að leiða þetta
öfluga félag og það frábæra fólk sem þar starfar.“
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á
innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014
um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um
aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Magnús Þór
Gylfason, forstöðumann samskipta og hagaðilatengsla, á netfanginu
magnus.gylfason@kvika.is eða í síma 899-5552