Picture of Kvika banki logo

KVIKA — Kvika banki News Story

0.000.00%
is flag iconLast trade - 00:00
FinancialsBalancedSmall CapValue Trap

Kvika banki hf.: Kvika gefur út skuldabréf í norskum og sænskum krónum

For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20230503:nGNE54cSty&default-theme=true


Kvika lauk í dag sölu á skuldabréfum að fjárhæð 550 milljónir norskra
króna og 275 milljónir sænskra króna.  Skuldabréfin eru til þriggja
ára og bera fljótandi vexti sem nema 410 punkta álagi á þriggja mánaða
millibankavexti í norskum og sænskum krónum.

Skuldabréfin eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) útgáfuramma
bankans og stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext
Dublin þann 11. maí 2023.

Samhliða sölu á ofangreindum skuldabréfum bauðst Kvika til að kaupa til
baka skuldabréf útgefin af bankanum í sænskum krónum með gjalddaga 31.
janúar 2024 (ISIN: XS2438025558) á verðinu 100,00. Í lok útboðsdags
námu endurkaup 79 milljónum sænskra króna.

Umsjónaraðilar viðskiptanna eru Nordea og Swedbank.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl
Kviku banka á netfanginu  fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200

Recent news on Kvika banki

See all news