For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20231114:nGNE15btRP&default-theme=true
Kvika lauk í dag sölu á skuldabréfum að fjárhæð 500 milljónum
sænskra króna og 250 milljónum norskra króna. Skuldabréf í sænskum
krónum eru græn skuldbréf til þriggja ára og bera fljótandi vexti sem
nema 400 punkta álagi á þriggja mánaða Stibor. Skuldabréfin eru fyrsta
græna útgáfa íslensks banka í sænskum krónum.
Skuldabréf í norskum krónum eru viðbótarútgáfa í flokki sem gefinn var
út í maí síðastliðnum, heildarstærð flokksins verður nú 800
milljónir norskra króna. Skuldabréfið er á gjalddaga í maí 2026 og var
viðbótarútgáfan seld á verði sem jafngildir 380 punktum ofan á þriggja
mánaða Nibor.
Skuldabréfin eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) útgáfuramma
bankans og stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext
Dublin þann 23. nóvember 2023.
Samhliða sölu á ofangreindum skuldabréfum bauðst Kvika til að kaupa til
baka skuldabréf útgefin af bankanum í sænskum krónum með gjalddaga 31.
janúar 2024.
Umsjónaraðilar viðskiptanna voru Nordea og Swedbank.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl
Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200