For best results when printing this announcement, please click on link below:
http://newsfile.refinitiv.com/getnewsfile/v1/story?guid=urn:newsml:reuters.com:20230503:nGNE2xSp7j&default-theme=true
Samrunaviðræður milli Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. standa yfir en
viðræðurnar hófust í kjölfar samþykkta stjórna félaganna beggja í
febrúar eins og fram hefur komið. Stjórnir félaganna telja að verulegur
ávinningur geti falist í samrunanum fyrir bæði hluthafa og viðskiptavini
beggja félaga.
Verkefnið er umfangsmikið og hafa bæði félög ráðið erlenda
fjárhagslega ráðgjafa og innlenda lögfræðilega ráðgjafa. Félögin og
ráðgjafarnir vinna nú að því að meta samlegð af samrunanum og meta
stöðu sameinaðs félags á markaði. Á öðrum ársfjórðungi munu
fjárhagslegir ráðgjafar skila greiningum sínum á mögulegum samruna og í
kjölfar þess munu félögin taka ákvarðanir um næstu skref í ferlinu.
Forsendur viðræðna og framkvæmd þeirrar vinnu hefur verið kynnt
Samkeppniseftirlitinu og stefna aðilar á að nýta sem best forviðræður
við Samkeppniseftirlitið í samræmi við nýlegar reglur þar að lútandi,
samhliða öðrum verkstraumum í viðræðunum